LPGA: Ariya leiðir í Hawaii
Thaílenski táningurinn Ariya Jutanugarn var á 8 undir pari, 64 höggum á frekar vindasömum Ko Olina vellinum, í Hawaii þar sem Lotte mótið á LPGA hófst í nótt. Hún er í 1. sæti og á 1 högg á „norsku frænku okkar” Suzann Pettersen og Hee Kyung Seo eftir 1. hring LPGA Lotte Championship.
Ariya lék fyrri 9 á 6 undir pari, 30 höggum, missti högg á par-4 10. holu með eina skolla hennar á hringnum, fékk örn á par-5 14. holuna og fugl á par-4, 15. holuna.
Eftirminnilegt er þegar Ariyu gafst færi á að vinna fyrsta mót sitt á heimavelli s.l. febrúar á LPGA Thailand, en stóðst ekki álagið á síðustu holunni, þar sem hún fékk snjókerlingu, þ.e. 8 högg (á par-5 holu) og færði núverandi nr. 1 á heimslistanum, Inbee Park sigurinn á silfurfati. Ariya kom hins vegar sterk tilbaka 3 vikum síðar þegar hún vann fyrsta titil sinn sem atvinnumanns á Lalla Meryem Cup, í Marokkó.
Pettersen var með 9 fugla og 2 skolla. Hún hefir 10 sinnum sigrað á LET og vann mót fyrr á árinu í Kína. „Ég fór út í dag og reyndi að vera virkilega aggressív,” sagði Pettersen, sem varð T-3 á Kraft Nabisco Championship, þ.e. fyrsta risamótinu í kvennagolfinu á árinu. „Pabbi varð fyrir svo miklum vonbrigðum með mig á Kraft, vegna þess að ég kláraði ekki stuttu púttin. Hann sagði: „Þú verður að drífa að holunni ef þú ætlar að setja púttin niður.“
Seo, sem vann Kia Classic 2010 átti skollalausan hring.
Hyo Joo Kim, 17 ára frá Suður-Kóreu sem spilaði með Airyu og hinni 15 ára Lydiu Ko var á sama skori og bandaríski kylfingurinn Danielle Kang, 66 höggum.
Ko var með skor upp á 71 högg. Hún var m.a. sigurvegari á Canadian Open s.l. ágúst og varð þar með yngsti sigurvegari á LPGA Tour, 15 ára, 4 mánaða og 2 daga.
Ko er með 2 aðra sigra á atvinnumannamótum í beltinu: hún sigraði á New South Wales Open á síðasta ári og New Zealand Women’s Open á þessu ári og vann U.S. Women’s Amateur síðasta keppnistímabil.
Nr. 2 á Rolex heimslista kvenna, bandaríski kylfingurinn Stacy Lewis, sem sigraði á 2 mótum í röð á þessu ári í Singapore og Phoenix var 3 höggum á eftir forystunni á 67 höggum ásamt þeim Ai Miyazato frá Japan, sem á titil að verja, Beatriz Recari, So Yeon Ryu, Jane Park, Rebeccu Lee-Bentram, Jane Rah og Gerinu Piller.
Recari vaar í holli með Suzanne Pettersen og Angelu Stanford og byrjaði glæsilega, fékk 4 fugla á fyrstu 6 holurnar.
„Við byrjuðum kl. 7:50 (17:50 í gær) og það var þegar orðið hvasst sérstaklega á seinni 9,” sagði Recari. „Þessar holur eru svo opnar út á sjó. Þannig að þetta var mikil áskorun þarna úti.” Recari vann Kia Classic í síðasta mánuði og var það 2. sigur hennar á LPGA .
„Það er þannig að þegar maður sigrar vill maður halda áfram að sigra,” sagði Recari. „Ég vil ekkert bara halla mér aftur og slaka á og bara rúnta um völlinn. Augljóslega vill maður koma sér í sigurstöðu aftur og vonandi vinn ég fleiri bikara.”
Kanadíski kylfingurinn Lee-Bentram fékk 9 pör í röð og síðan fékk hún fugl á næstu fimm af 7 holum á skollalausum hring sínum.
„Ég sagði bara við sjálfa mig að vera þolinmóð,” sagði Lee-Bentram. „Púttin voru ekki að detta á fyrri 9 og ég var bara með pör. Ég vissi að ef ég héldi áfram að para myndu fuglarnir koma. Og það gerðist.”
Eldri systir Ariyu, Moriya er líka í mótinu og hún spilaði á 69 höggum.
Nr. 1 á Rolex heimslistanum Inbee Park, sigurvegari 1. risamóts ársins í kvennagolfinu var meðal hóps kvenkylfinga sem voru á 70 högum, en þar gaf m.a. að finna uppáhald heimamanna, Michelle Wie og Natalie Gulbis, sem nú tekur þátt í 2. móti sínu eftir að hafa jafnað sig á malaríu.
Fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Yani Tseng, sem ekki hefir sigrað á móti í yfir ár var líkt og Lydia Ko á 71 höggi.
Til þess að sjá stöðuna á LPGA Lotte Championship eftir 1. dag í Hawaii SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
