LPGA: Alison Lee leiðir á Hana Bank mótinu í Kóreu e. 1. dag
Það er bandaríski kylfingurinn Alison Lee sem leiðir á LPGA KEB Hana Bank Championship í Suður-Kóreu, en mótið hófst í dag í Incheon í Suður-Kóreu. Að venju er spilaður Ocean völlurinn í Sky 72 golfklúbbnum.
Lee lék 1. hringinn á 7 undir pari, 65 höggum og hefir 3 högga forystu á hóp 5 kylfinga, sem allar deila 2. sætinu á 4 undir pari, 69 höggum.
Það eru Anna Nordqvist frá Svíþjóð, Lizette Salas frá Bandaríkjunum; In Kyung Kim og Jeong Min Cho frá Suður-Kóreu og Karine Icher frá Frakklandi.
Þess mætti geta að nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Lydia Ko, fékk tvo fugla á síðustu 2 holurnar og rétt bjargaði skorinu þar með í 3 yfir par, 75 högg og er T-63 og óþægilega nálægt niðurskurðarlínunni.
Það er Lexi Thompson, sem á titil að verja.
Sjá má stöðuna á KEB Hana Bank Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
