
LPGA: Ai Miyazato leiðir fyrir lokadaginn á Honda LPGA Thaíland 2012
Það stefnir í hörkuslag í kvennagolfinu á LPGA á morgun og mætast þar stálin stinn. Ai Miyazato frá Japan, fyrrum nr. 1 á R0lex-heimslista kvennagolfsins leiðir eftir 3. dag Honda LPGA Thailand 2012. Hún átti glæsihring upp á 65 högg og er því samtals búin að spila á -14 undir pari, samtals 202 höggum (67 70 65). Ai fékk hvorki fleiri né færri en 8 fugla á 3. hring, en því miður líka skolla á par-4, 3. braut Pattaya Old Course vallarins, í Síam CC, í Chonburi.
Á hæla Ai er núverandi nr. 1 kvennagolfinu, Yani Tseng frá Taíwan. Hún er aðeins 1 höggi á eftir, á samtals -13 undir pari, 203 höggum (73 65 65).
Þær sem deila 3. sætinu eru heldur ekki af verri endanum, en það er enn ein fyrrum nr. 1 í heiminum Jiyai Shin og forystukona gærdagsins, hin ástralska Karrie Webb. Þær eru 2 höggum á eftir Ai; á samtals -12 undir pari Shin (70 66 68) og Webb (68 65 71).
Fjórum höggum á eftir Ai, á samtals 206 er norska frænka okkar Suzann Pettersen og gæti líka hæglega blandað sér í baráttuna á morgun.
Aðeins neðar á skortöflunni eru mörg stór nöfn kvennagolfsins t.a.m.: Caroline Hedwall T-15 (samtals 211 högg); T-17 Brittany Lincicome T-17 (samtals 212 högg); Anna Nordqvist, Azahara Munoz og Cristie Kerr ásamt fleirum T-19 (samtals 213 högg hver); Sandra Gal og Christel Boeljon T-25 ásamt fleirum (samtals 214 högg hvor); loks eru Michelle Wie og Lexi Thompson T-36 ásamt 2 öðrum (samtals 216 högg hvor)
Til þess að sjá stöðuna á Honda LPGA Thailand 2012 eftir 3. dag smellið HÉR:
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023