LPGA: Karrie Webb sigraði á Women´s Australia Open
Það var heimakonan, ástralska golfdrottningin Karrie Webb sem sigraði á ISPS Handa Women´s Australia Open.
Hún lék á samtals 12 undir pari, 276 höggum (71 69 68 68).
Karrie er fædd í Ayr í Queensland, Ástralíu, en býr í dag á Boynton Beach í Flórída. Hún er fædd 21. desember 1974 og var því 39 ára 1 mánaða og 25 daga gömul þegar hún sigraði í mótinu, gegn sér meira en helmingi yngri keppendum á stundum.
Karrie gerðist atvinnumaður í golfi 1994 og er því búin að vera að í 20 ár.
Þetta er 40. sigur henna á LPGA og fyrsti sigur hennar frá því í ShopRite mótinu 2013. Fyrir sigurinn hlaut Karrie $ 180.000,- (eða u.þ.b. 20 milljónir íslenskra króna).
Í 2. sæti á ISPS Handa Women´s Australia Open varð Chella Choi frá Suður-Kóreu sem setti svo glæsilegt vallarmet á 3. hring. Hún varð 1 ergilegu höggi á eftir Karrie, lék á samtals 11 undir pari, 277 höggum (70 71 62 74) en átti sultuslakan lokahring upp á 74 högg, sem kostaði hana sigurinn.
Þriðja sætinu deildu 3 góðar: bleiki pardusinn, nýtrúlofaði Paula Creamer, evrópska Solheim Cup stjarnan franska, Karine Icher og 16 ára nýliðinn á LPGA, Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi. Þær léku allar á samtals 10 undir pari, hver.
Til þess að sjá lokastöðuna á ISPS Handa Women´s Australia Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
