Önnur mynd en sú sem birtist af Ólafíu með íslenska fánann í Women&Golf en allt eins góð … ef ekki betri… Lokaúrtökumót LPGA: Ólafía T-10 e. 2. dag – Á glæsilegu skori 66 höggum!!! – „Fékk stuðning fjölda Íslendinga“
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, átti aldeilis hreint frábæran 2. hring í dag á Jones vellinum sem er talinn sá auðveldari af tveimur keppnisvöllum lokaúrtökumóts bestu kvenmótaraðar heims, LPGA, en hún hóf leikinn á þeim erfiðari af völlunum, Hills vellinum.
Efst eftir 2. dag er Solheim Cup kylfingurinn evrópski, Mel Reid, en Ólafía er ekki ókunnug henni, var m.a. í ráshóp með Reid á móti Evrópumótaraðarinnar í Abu Dhabi nú um daginn.
Reid er búin að spila á samtals 11 undir pari, 133 höggum (69 64).
Ólafía Þórunn er samtals búin að spila á 4 undir pari, 140 höggum (74 66); en enn er mikið golf eftir og oft ráðast úrslitin ekki fyrr en á lokaholunum á 5. og síðasta keppnisdag og eru þá oft miklar sviptingar.
Sem stendur er Ólafía Þórunn T-10 eftir 2. keppnisdag, en hún var T-72 eftir 1. keppnisdag, þegar hún lék Hills völlinn á 2 yfir pari og hefir því farið upp um 62 sæti milli daga.
Það er vonandi að framhaldið verði jafnglæsilegt hjá Ólafíu Þórunni og í dag. Golf 1 sendir bestu baráttukveðjur!!!
Indverski kylfingurinn Aditi Ashok, sem sigrað hefir á 2 Evrópumótum í röð er T-27 eftir 2. dag á samtals 1 undir pari, 143 höggum (73 70).
Efstu 20 af lokaúrtökumótinu hljóta kortið sitt og þar með keppnisrétt á sterkustu kvenmótaröð heims, LPGA.
Gaman er að því að fjöldi Íslendinga er að fylgjast með Ólafíu Þórunni í Flórída og styður hana óspart, sbr. orð Ólafíu að loknum glæsihringnum 2. keppnisdaginn:
„„Það var ótrúlega gaman í dag, ég spilaði ótrúlega stöðugt golf og púttaði mjög vel. Ég hitti 15 flatir í tilætluðum höggafjölda og var með 28 pútt. Það var góð stemning á vellinum þar sem ég fékk góðan stuðning frá fjölda Íslendinga.“
Þess skal getið að þátttakendur í lokaúrtökumótinu eru gríðarlega sterkir og hafa margir þeirra þegar reynt fyrir sér á LPGA, Evrópumótaröðinni eða öðrum sterkum kvenmótaröðum.
Sjá má stöðuna eftir 2. dag á lokaúrtökumóti LPGA með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
