Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1 Lokaúrtökumót LET: Valdís Þóra T-17 e. 3. dag
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, var á 3 undir pari, 69 höggum, þriðja keppnisdag á lokaúrtökumóti LET, sem fram fer í Marokkó.
Valdís Þóra var á parinu á 1. holu; fékk síðan fugl á 2. holu, en 2. brautin var par-5; var síðan á pari 3. og 4. holu, fékk skolla á 5. holu og síðan fugl á 6. holu.
Á 7. holu bjargaði Valdís Þóra glæsilega pari og var einnig á pari 8.- 9. holu.
Eftir fyrri 9 var Valdís Þóra því á 1 undir pari, með 2 fugla og 1 skolla.
Valdís Þóra átti síðan glæsilega seinni 9. Það byrjaði á að hún setti niður fuglapútt af 8 metra færi á 10. braut og síðan annan á 11. braut. Samtals var Valdís Þóra nú á 3 undir pari á 3. degi. Síðan missti hún högg á 12. braut – var á -2 eftir 12. braut og fékk síðan par á 13.- 17. braut; púttaði fyrir erni á 18. braut en fékk fugl.
Sjá má nánari lýsingu á hring Valdísar Þóru 3. keppnisdag á Twitter síðu GSÍ SMELLIÐ HÉR:
Samtals er Valdís Þóra því á 4 undir pari, 212 höggum (72 71 69).
Topp 30 tryggja sér fullan keppnisrétt á LET og sæti 31.-60 gefa takmarkaðan keppnisrétt og er Valdís Þóra á góðri leið með að tryggja sér fullan keppnisrétt …. að því gefnu að gengið verði svona áfram, en tveir hringir eru eftir. Frábær hringur í dag! Frábært hjá Valdísi Þóru!
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á lokaúrtökumóti LET SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
