Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2023 | 18:00

LIV: DJ sigraði í Tulsa – Varner III í DC

Það var Dustin Johnsson (DJ), sem sigraði í LIV mótinu í Tulsa, eftir 3 manna bráðabana, sem auk hans voru í Cameron Smith og Branden Grace.  Eftir hefðbundinn 54 holu leik voru þeir allir á samtals 17 undir pari. Það varð því að koma til bráðabana og sigraði DJ á 3. holu bráðabanans Þetta er 1. sigur DJ í ár og 2. sigur hans á LIV mótaröðinni. Fyrir sigurinn hlaut hann hinn eftirsótta $ 4 milljón tékka (572 milljónir íslenskra króna). Mótið fór fram í Cedar Ridge CC, í Tulsa, Oklahoma, dagana 12.-14. maí 2023.

_____________________________________________

Sjöunda mót LIV golfmótaraðarinnar fór fram í Trump National golfklúbbnum i Washington DC, dagana 26.-28. maí 2023. Sigurvegari í því móti varð Harold Varner III, en hann sigraði á samtals 12 undir pari (64 72 68). Í 2. sæti varð Branden Grace á samtals 11 undir pari og í 3. sæti MitoPereira, á samtals 10 undir pari.

Næsta LIV golfmót fer fram á Valderrama golfvellinum á Spáni, dagana 30. júní – 2. júlí 2023. Skyldi Sergio Garcia standa uppi sem sigurvegari?