Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2015 | 13:45

Lingmerth vonast eftir Ryder Cup sæti

Sænski kylfingurinn David Lingmerth mun spila á Evrópumótaröðinnni á næsta keppnistímabili til þess að reyna að komast í Ryder bikars lið Evrópu.

Hinn 28 ára Svíi (Lingmerth) hefir spilað á PGA Tour frá því að hann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2010, sem líklega var eðlilegt framhald hjá honum eftir að hafa spilað í bandaríska háskólagolfinu.

En Lingmerth hefir nú gefið út að hann ætli að spila á Evróputúrnum til þess að koma til greina sem einn af 12 í liði Darren Clarke sem mun reyna að verja Ryder bikarinn í Hazeltine á næsta ári, 2016!

Lingmerth hefur tilraun sína til þess að komast í liðið með því að taka þátt í Australian PGA Championship.

Þetta mót er samstarfsverkefni ástralska PGA og Evrópumótaraðarinnar og veitir Lingmerth tækifæri til að byrja að safna stigum í sarpinn.

Ég vonast til þess að spila meira á Evrópumótaröðinni á næsta ári til þess að koma til greina í Ryder bikarnum.“

Ef ég spila nógu vel næ ég vonandi að komast í liðið; ef ekki þá hef ég a.m.k reynt. Þegar ég óx upp var Ryder bikarinn algerlega einn af hápunktum ársins. Þetta er draumur margra okkar að fá að spila í Ryder bikarnum og ég hlakka virkilega til að spila meira á Evróputúrnum og gera það besta úr þessu tækifæri.“