Tiger og Lindsey meðan allt lék í lyndi
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2015 | 18:00

Lindsey um Tiger: „Ég elskaði hann og ég elska hann enn“

Lindsey Vonn segir að hún elski Tiger Woods enn þrátt fyrir að þau hafi hætt saman í maí s.l.

Ég meina, ég elskaði hann og ég elska hann enn,“ sagði hún í þætti CNN, Alpine Edge Show.

Ég átti 3 frábær ár með honum,“ sagði Lindsey. „Stundum ganga hlutirnir bara ekki upp og því miður gengu þeir ekki upp hjá okkur.

En ég sé ekki eftir neinu og ég held að við séum bæði á góðum stað.“

Vonn hefir alltaf talað vel um Tiger eftir að þau tvö hættu saman.  Í sama viðtali segist hún að raunhæft séð eigi hún bara eftir 3 ár í skíðabransanum; hún upplifi sig sem gamla (hey 31 árs!!!) þær yngri séu að koma fram á sjónarsviðið; og annað óvænt í viðtalinu, hún sem er svo falleg segir að sér finnst hún alltaf of stór og feit og sé mjög spéhrædd. Ótrúlegt!!!

Sjá má viðtalið við Lindsey á CNN með því að SMELLA HÉR: