Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2012 | 08:30

Lexi fór á prom með Mark Scott – myndskeið

Atvinnukylfingurinn ungi Lexi Thompson var í fréttunum í síðasta mánuði vegna þess að hún fór nokkuð óvenjulega leið til þess að finna sér „deit” á prom, en Lexi er nýorðin 17 ára og enn í High School.  Hún auglýsti eftir hermanni til þess að fylgja sér.

Hundruðir hermanna buðust til þess að gerast fylgdarsveinar Lexi og fór hún samviskusamlega yfir alla sem sendu henni vídeóupptökur af sér.  Fyrir valinu varð ungur hermaður að nafni Mark Scott.

Þau Lexi hittust í fyrsta sinn fimmtudaginn fyrir viku.  Hann fékk að dást að Lexi meðan hún mátaði kjólinn sinn og síðan voru teknar nokkrar myndir af þeim.  Að því búnu tók Mark, Lexi með sér á skotæfingu og síðan fékk Mark að fara með Lexi í golf og eflaust margir sem öfunda hann.

Föstudagskvöldið 18. maí s.l. skelltu skötuhjúin sér síðan á prom.

Sjá má myndskeið af Lexi og Mark HÉR: