Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2015 | 20:00

Lexi bara ánægð með mynd af sér „naktri að ofan“ á forsíðu Golf Digest

Bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson birtist á forsíðu nýjasta tölublaðs hins virta Golf Digest golftímarits og er þar „nakin að ofan“ þ.e. greinilega sést að hún er ekki klædd nema hvað hún heldur að því er virðist handklæði/jakka fyrir brjóstum sér.

Úff það sést í brjóstin á Lexi í nýjasta tölublaði Golf Digest!

Úff það sést í brjóstin á Lexi í nýjasta tölublaði Golf Digest!

Forsíðumyndin hefir verið mjög umtöluð vestra, svo vægt sé til orða tekið.

Lexi birtist í viðtali við Fox&Friends nú í morgun og sagðist ekki hafa verið í neinum vandræðum með að hafa verið „nakin að ofan“ í myndatökunni.

Ég er í fleiri fötum á myndinni en fullt af stelpum á ströndinni,“ sagði Thompson í sjónvarpsþætti Fox & Friends „Ég er í skóm, í stuttbuxum og ég er í jakka sem hylur mig.“

En þetta er heilsuræktarblaðið,“ hélt Thompson áfram. „Við tókum mikið af mismunandi myndum. Þetta er sú sem þeir völdu á Golf Digest. Ég er bara ánægð með hana (myndina).“

Aðstoðarþáttastjórnandinn Elisabeth Hasselbeck sagðist ekki skilja gagnrýnina, en sagði myndina sýna„sterka konu sem væri falleg og frábær í íþróttagrein sinni.“  Hægt að taka undir með Hasselbeck að þessu sinni.

Hér má sjá myndskeið frá Lexi í viðtali hjá Fox & Friends SMELLIÐ HÉR: