LET: Valdís Þóra keppir á ný nk fimmtudag á NSW Open í Ástralíu
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefur keppni á ný fimmtudaginn 1. mars á Coffs Harbour vellinum í Ástralíu. NSW Open er hluti af LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Valdís Þóra náði frábærum árangri um s.l. helgi þar sem hún varð í þriðja sæti á Ladies Classic Bonville mótinu sem fram fór í Ástralíu. Valdís Þóra lék hringina fjóra á -7 samtals eða 281 höggi (69-70-72-70).
NSW mótið verður fjórða mótið í röð hjá Valdísi Þóru á LET Evrópumótaröðinni á þessu ári en öll mótin fara fram í Ástralíu. Íslandsmeistarinn 2017 tók einnig þátt á LPGA móti í febrúar og er mótið því fimmta mótið í röð hjá Valdísi Þóru í þessari keppnistörn.
Valdís Þóra er í sjötta sæti peningalistans á LET Evrópumótaröðinni en þetta er annað keppnisárið hjá henni á mótaröðinni.
Valdís Þóra verður í ráshóp með Sheridan Gorton og Inci Mehmet fyrstu tvo keppnisdagana en mótið fer fram á Cofffs Harbour vellinum. Hún hefur leik kl. 13:00 að staðartíma fimmtudaginn 1. mars eða kl. 02 aðfaranótt fimmtudagsins 1. mars að íslenskum tíma.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
