LET: Tvær skærustu kvengolfstjörnur Þjóðverja – klúbbmeistarar í sama klúbb
Nú í vikunni fer fram Ladies Euroepean Masters og er það mót vikunnar á Evrópumótaröð kvenna.
Spilað verður í Golf Club Hubbelrath í Düsseldorf, Þýskalandi.
Það vill svo skemmtilega til að Sandra Gal og Caroline Masson, sem eru tvær skærustu golfstjörnur Þjóðverja hafa báðar orðið klúbbmeistarar í þessum klúbb; Gal 2001-2003 og Masson 2004.
Masson, 27 ára, innsiglaði nú um sl. helgi fyrsta sigur sinn á LPGA á Manulife LPGA Classic og virðist sjóðandi heit í augnablikinu.
Minna hefir borið á W-7 módelinu, Gal, 31 árs, að undanförnu, en hún á þó einnig í beltinu 1 sigur á LPGA, þ.e. á Kia Classic 2011.
Gaman verður að fylgjast með hvernig þeim stöllum gengur á gömlum heimavelli beggja í Golf Club Hubblerath, þar sem þær hafa áður unnið frækna sigra!
Þær hljóta þátttökurétt ásamt hinni sænsku Caroline Hedwall (skólafélaga og vinkonu Eygló Myrru Óskarsdóttur) af því þær hafa verið í Solheim Cup liði Evrópu.
Meðal þátttakenda verður einnig Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, en hún hlýtur þátttökurétt í mótinu á grundvelli þess að hafa verið meðal 30 efstu í Q-school LET.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
