Celine Herbin
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 20. 2013 | 13:00

LET: Pace og Herbin í forystu eftir 2. dag Opna spænska

Opna spænska kvennamótið fer fram þessa dagana þ.e. 18.-21. júlí í Madrid á Spáni.  Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna, LET.

Þegar mótið er hálfnað eru það Lee Anne Pace frá Suður-Afríku og franska stúlkan Celine Herbin sem deila forystunni, en báðar eru búnar að spila á 8 undir pari 136 höggum; Herbin (68 68) og Pace (67 69).

Í 3. sæti eru 2 hin sænska Isabella Ramsey og Jia Yun Li frá Kína. Báðar eru þær 2 höggum á eftir forystunni þ.e. á 6 undir pari, 138 höggum; Ramsey (69 69) og Li (72 66).

Þriðji hringur er þegar hafinn og má fylgjast með skori keppenda með því að SMELLA HÉR: