Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 23. 2018 | 12:00

LET: Ólafía lauk keppni T-50 á Estrella Damm

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, atvinnukylfingur á LPGA, lauk keppni á  Estrella Damm mótinu nú rétt í þessu.

Ólafía Þórunn lék samtals á 3 undir pari, 281 höggi (72 69 69 71) og lauk keppni T-50 þ.e. fór niður um 6 sæti frá deginum áður.

Sigurvegari í mótinu varð hollenska stúlkan Anne Van Dam á glæsilegum 26 undir pari, 258 höggum (64 64 65 65).

Van Dam átti heil 8 högg á þær sem deildu 2. sætinu, sem léku á 18 undir pari, 266 höggum; hina þýsku Caroline Masson (68 65 67 66); hina sænsku Caroline Hedwall (69 67 62 68) og áhugamanninn frá S-Kóreu, hina stórefnilegu Selin Hyun (67 69 64 66).

Sjá má lokastöðuna á Estrella Damm með því að SMELLA HÉR: