Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2016 | 12:00

LET: Ólafía í 1. sæti e. 1. dag á Fatima Bint Mubarak Ladies Open – Á glæsilegum 65!!!

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, hóf leik í dag með látum á Fatima Bint Mubarak Ladies Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröð kvenna (LET = Ladies European Tour).

Spilað er í Saadiyat Beach Golf Club, í Abu Dhabi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og stendur mótið dagana 2.-5. nóvember 2016.

Ólafía Þórunn átti glæsiupphafshring upp á 7 undir pari, 65 högg og er í 1. sæti eftir 1. dag.

Hún fékk 8 fugla og 1 skolla á hringnum.

Sjá má stöðuna á Fatima Bint Mubarak Ladies Open með því að SMELLA HÉR: