Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2016 | 20:00

LET: Ólafía á 71 e. 1. dag í Tékklandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR lék 1. hring á Tipsport Golf Masters, móti vikunnar á Evrópumótaröð kvenna á sléttu pari eða 71 höggum.

Á hringnum fékk Ólafía 2 fugla, 14 pör og 2 skolla.

Hún er sem stendur T-27. Spáð er að niðurskurðarlínan verði við 1 yfir pari og ef Ólafía á annan svona hring á morgun er hún komin í gegnum niðurskurð!

Í efsta sæti í mótinu e. 1. dag eru þýski kylfingurinn Isi Gabsa (sjá eldri kynningu Golf 1 á Isi með því að SMELLA HÉR:) og Linda Wessberg frá Svíþjóð, en þær léku báðar á 5 undir pari, 66 höggum.

Sjá má stöðuna á Tipsport Golf Masters e. 1. dag með því að SMELLA HÉR: