CAPE TOWN, SOUTH AFRICA – MARCH 06: Tiia Kovisto during day 1 of the Cape Town Ladies Open at Royal Cape Golf Club – SLT on March 06, 2019 in Cape Town, South Africa. EDITOR’S NOTE: For free editorial use. Not available for sale. No commercial usage. (Photo by Thinus Maritz/Sunshine Tour/Gallo Images)
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2022 | 18:00

LET: Koivisto sigraði á Jabra Ladies Open

Mót vikunnar á Evrópumótaröð kvenna (LET) er Jabra Ladies Open.

Mótið fór fram dagana 19.-21. maí 2022 í Evian Resort golfklúbbnum, í Evian-les-Bains, Frakklandi.

Meðal þátttakenda var Guðrún Brá Björgvinsdóttir en hún komst því miður ekki gegnum niðurskurð; lék á samtals 8 yfir pari (74 76) og munaði aðeins 1 höggi að hún kæmist í gegn, en niðurskurður var miðaður við samtals 7 yfir pari eða betra.

Sigurvegari mótsins var hin finnska Tia Koivisto, en hún hafði betur í bráðabana gegn Whitney Hillier, en báðar voru efstar og jafnar eftir hefðbundinn 72 holu leik.

Sjá má lokastöðuna á Jabra Ladies Open með því að SMELLA HÉR: