LET: Hillier og Schreefel deila forystu e. 1. dag á Helsingborg Open
Í gær hófst Helsingborg Open í Vasatorp GC í Helsingborg í Skáni, Svíþjóð, en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna (LET).
Eftir 1. dag deila ástralska stúlkan Whitney Hillier og hollenska stúlkan Dewi Claire Schreefel, en báðar léku Vasatorp golfvöllinn á 5 undir pari, 67 höggum. Sjá má fallega sveiflu Hillier á eldra myndskeiði með því að SMELLA HÉR:

Ástralska stúlkan Whitney Hillier
Þriðja sætinu deila hin sænska Camilla Lennarth og fyrrum Wilhelmínu-7 módelið finnska Minea Blomqvist, en þær eru aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum.
Hópur hvorki fleiri né færri en 10 kylfinga er síðan í 5. sæti en þar er þekktust enska golfdrottningin Laura Davies, en allir kylfingarnir í 5. sæti hafa leikið á 3 undir pari, 69 höggum.
Keppnin er jöfn og spennandi og stefnir í skemmtilega golfhelgi í kvennagolfinu!
Til þess að sjá stöðuna á Helsingborg Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
