Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2018 | 20:00

LET: Guðrún Brá er í 43. sæti á lokaúrtökumótinu

Íslandsmeistarinn í golfi 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, hefur leikið tvo hringi á lokaúrtökumótinu fyrir LET – Evrópumótaröð kvenna í golfi. Alls verða leiknir fimm hringir á fimm keppnisdögum. Mótið fer fram í Marokkó og eru keppnisvellirnir tveir.

Guðrún Brá er í 43. sæti á +1 samtals (73-72).

Alls eru 115 sem keppa um 25 efstu sætin sem tryggja keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu, LET Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL er með keppnisrétt á þessari mótaröð á næsta tímabili. Alls hafa þrjár íslenskar konur komist inn á LET-Evrópumótaröðina í gegnum lokaúrtökumótið: Ólöf María Jónsdóttir úr Keili, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir.

Sjá má stöðuna á lokaúrtökumóti LET í Marokkó með því að SMELLA HÉR: