Evrópumótaröðin: GMac sigraði í París – Hápunktar 4. dags
Það var norður-írski kylfingurinn Graeme McDowell (GMac) sem sigraði glæsilega á Alstom Open de France í gær.
GMac átti frábæran lokahring upp á 4 undir pari, 67 högg og lék samtals á 5 undir pari, 279 höggum (70 79 73 67).
„Ég er mjög undrandi“ sagði McDowell í gær eftir að hafa nælt sér í 10. Evróputitil sinn. „þegar ég var að klára 2. glasið af rauðvíni í gær (þ.e. á laugardeginum og var vonsvikinn yfir seinni 9 hjá mér 2. daginn þá hélt ég virkilega ekki að ég myndi standa hér með a) möguleika á bráðabana og b) sigurbikarinn í höndum mér.“
GMac var heilum 8 höggum á eftir þeim sem leiddi allt mótið, Bandaríkjamanninum Kevin Stadler, fyrir lokahringinn. Stadler varð hins vegar að spila í vondu rigningaveðri meðal veðrið var skaplegra hjá GMac og allt í einu fór GMac í gírinn og saxaði á forskot „litla rostungsins“ eins og Stadler er oft kallaður.
Í lokinn átti GMac 1 högg á þá Kevin Stadler og Thongchai Jaidee frá Thaílandi, sem urðu í 2. sæti.
Í 4. sæti enn öðru höggi á eftir þ.e. á samtals 3 undir pari, var Svíinn Robert Karlsson.
Til þess að sjá lokastöðuna á Opna franska (Alstom Open de France) SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Opna franska SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
