Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2019 | 03:30

LET: Erfið byrjun hjá Valdísi í Delhi!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL átti erfiða byrjun nú í nótt á Hero Women’s Indian Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröð kvenna (LET: Ladies European Tour) og fer fram á DLF Golf & Country Club í Delhi, Indlandi.

Valdís Þóra hóf leik á 10. teig.

Þegar Valdís Þóra hafði spilað 4 holur var hún komin á 6 yfir par!

Hún byrjaði á því að fá 3 tvöfalda skolla í röð og er nú rétt að jafna sig; fékk par bæði á par-4, 13. og 14. holurnar, en er enn á 6 yfir pari, eftir 5 holur.

Vonandi heldur hún haus og snýr hún þessu við í framhaldinu, en þetta er afar erfið byrjun!!!

Fylgjast má með Valdísi og sjá stöðuna á Hero Women’s Indian Open mótinu með því að SMELLA HÉR: