LET: Carly Booth spilar á UNIQA Ladies Golf Open sem hefst í dag
Carly Booth segir að það að spila í Austurríki í vikunni sé kjörinn undirbúningur fyrir Ricoh Women’s British Open, sem hefst í næstu viku og er síðasta risamótið í kvennagolfinu í ár.
Þessi 20 ára skoska stúlka sem svo sannarlega er búin að slá í gegn á LET í ár tekur þátt í UNIQA Ladies Golf Open í Golfclub Föhrenwald í Wiener Neustadt, sem er í 1/2 klst. akstursfjarlægð frá Vín í dag, sem lið í undirbúningi fyrir risamótið á Royal Liverpool.
Carly hefir sigrað tvívegis á LET á nýliðaári sínu þ.e. í Sviss og heimalandi sínu Skotlandi og er búin að vinna sér inn €145,430, og leiðir á Ladies European Tour’s ISPS Handa Order of Merit með €10,000 forskot á Caroline Masson, frá Þýskalandi sem nýlega vann í Suður-Afríku, en verður að spila vel í Austurríki ætli hún sér að halda 2. sætinu.
Carly spilaði ekki í Austurríki á síðasta ári þegar þáverandi nýliði á LET, Caroline Hedwall sigraði á skori upp á 12 undir pari, samtals 204 höggum á 3 hringjum. Hún var hins vegar með 2010 þegar Laura Davies vann mótið í 3. sinn. Hedwall, Davies og Masson eru meðal þeirra 108 kvenna sem þátt taka í mótinu og eru skæðustu keppinautar Carly.
Fylgjast má með 1. degi UNIQA Ladies Golf Open með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

