LET Access: Valdís Þóra varð í 22. sæti í Svíþjóð!!!
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hafnaði í 22. sæti á Norrporten Ladies Open, sem lauk í dag, en mótið stóð dagana 3.-5. ágúst 2016.
Mótið fór fram á keppnisgolfvelli Sundsvalls Golfklubb í Svíþjóð og er hluti af LET Access, þ.e. 2. deildinni í evrópska kvennagolfinu, en mótið var gríðarlega sterkt – margir kylfinganna leika eða hafa leikið í 1. deildinni, Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Valdís Þóra lék á samtals 5 yfir pari, 218 höggum (72 73 73).
Frábærir kylfingar á borð við Virginiu Espejo frá Spáni, Czillu Lajtai-Rozsa frá Ungverjalandi og einn sterkasti kvenkylfingur Sviss, Anäis Magetti voru jafnir eða á eftir Valdísi Þóru. Glæsilegt!!!
Það var heimakonan Jenny Haglund frá Svíþjóð sem stóð uppi sem sigurvegari – lék á samtals 7 undir pari!!!
Til þess að sjá lokastöðuna á Norrporten Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
