Valdís Þóra Jónsdóttir, GL.
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2017 | 20:00

LET Access: Valdís Þóra T-3 e. 1. dag í Tékklandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, tekur þátt í Foxconn Czech Ladies Challenge, en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni.

Mótið stendur daganna 22.-24. júní 2017 og fer fram í Casa Serena golfklúbbnum, í Kutná Hora, í Tékklandi.

Valdís Þóra lék 1. hring á glæsilegum 3 undir pari, 68 höggum, þar sem hún fékk 5 fugla og 2 skolla.

Valdís Þóra er T-3 eftir 1. keppnisdag, þ.e. deilir 3. sætinu með 5 öðrum kylfingum.

Til þess að sjá stöðuna á Foxconn Czech Ladies Challenge SMELLIÐ HÉR: