LET Access: Ólafía Þórunn lauk keppni T-24 á ASGI-mótinu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lék lokahringinn á ASGI Ladies Open á 3 yfir pari, 75 höggum og rann við það niður skortöfluna að nýju í 24. sætið en hún var T-10 eftir frábæran hring í gær upp á 69 högg.
Samtals lék Ólafía Þórunn á parinu, 216 höggum (72 69 75) Niðurstaðan var 24. sætið, en taka ber fram að þetta mót var afar sterkt.
Það voru 48 sem komust í gengum niðurskurð þannig að Ólafía varð einhvers staðar í miðjunni af keppendum.
Í fyrra varð Ólafía í 5. sæti í sama móti með skor upp á 70 66 75. Fyrir lokahringinn þá var hún í fyrsta sæti og athyglivert að hún lauk mótinu á sama hátt í dag og fyrir ári á mótinu á 3 yfir pari.
Sú sem sigraði í ASGI-mótinu var spænsk stúlka Carolina Gonzalez Garcia, en hún lék á samtals 8 undir pari, 208 höggum (63 71 74).
ASGI mótið fór fram á golfvelli Gams-Werdenberg GC, í Gams, Sviss en líkt og flest LET Access mót var mótið þriggja daga stóð frá 28.-30. apríl 2016.
Það kemur mót eftir þetta og svo er bara að taka þetta ASGI-mót á næsta ári!!!
Næsta mót Ólafíu Þórunnar er LET mót en LET Access er 2. deildin hjá konunum í Evrópu. Næsta mót Ólafíu Þórunnar fer fram 5. maí í Marokkó, þ.e. Lalla Meryem Cup á velli, sem Ólafía þekkir býsna vel þ.e. Royal Golf Dar Es Salam.
Sjá má lokastöðuna á ASGI mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
