Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2016 | 18:30

LET Access: Ólafía Þórunn á 69 á 2. degi ASGI mótsins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er í góðri stöðu fyrir lokahringinn á LET Access mótaröðinni í Sviss. GR-ingurinn lék á 69 höggum í dag eða -3 og er hún samtals á -3 (72-69). Hún fékk 5 fugla og 2 skolla á 2. hring. Ólafía fór upp um 17 sæti í dag og er T-10 eftir 2. dag.

Lokahringurinn fer fram á morgun en þetta er annað mótið hjá Ólafíu á LET Access mótaröðinni á þessu tímabil en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu.

Ólafía lék á sínu fyrsta móti á Terre Blanche mótinu í Frakklandi í lok mars og þar náði hún fínum árangri og lék á einu höggi undir pari samtals og endaði á meðal 15 efstu.

Alls eru 126 keppendur á þessu móti frá 28 þjóðum. Mótið fer fram á Golf Club Gams Werdenberg í Gams í Sviss. Heildarverðlaunaféð er 4,3 milljónir kr.

Margir kylfingar sem eru með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni eru á meðal keppenda á þessu móti. Mótið er því sterkt og gefur mörg stig á heimslistann.

Sjá má stöðuna á ASGI mótinu eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR: 

Þetta er annað mótið á þessu ári hjá Ólafíu en hún undirbýr sig af krafti fyrir fyrsta mótið á sjálfri LET Evrópumótaröðinni í byrjun maí. Ólafía er með keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki en hún fær samt sem áður ekki mörg tækifæri á þeirri mótaröð á sínu fyrsta keppnistímabili. Hún nýtir því hvert tækifæri til þess að keppa á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access mótaröðinni, en þar eru tveir íslenskir kylfingar með keppnisrétt. Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL.

Heimild: golf.is