Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2015 | 22:00

LET Access: Ólafía Þórunn +3 og Valdís Þóra á +9 í Svíþjóð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hófu leik í dag á Sölvesborg Ladies Open Hosted by Fanny Sunneson, en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni.

Ólafía lék á 3 yfir pari, 75 höggum og Valdís á 9 yfir pari 81 höggi.

Ólafía er T-40 en Valdís T-101 eftir 1. dag.

Efstar í mótinu er Cecilie Lundgreen frá Noregi og Natalie Wille frá Svíþjóð.

Til þess að sjá stöðuna á  Sölvesborg Ladies Open SMELLIÐ HÉR: