Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 17:00

LET Access: Guðrún Brá úr leik í Svíþjóð

Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tók þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open.

Mótið var þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fór fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð.

Guðrún Brá lék samtals á 6 yfir pari, 150 höggum (75 75) og komst ekki í gegnum niðurskurð, sem var miðaður við parið eða betra.

Sigurvegari í Turfman Allerum Open varð Rachel Goodall frá Englandi en hún lék á samtals 9 undir pari, 207 höggum (68 72 67).

Til þess að sjá lokastöðuna á Turfman Allerum Open SMELLIÐ HÉR:

Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.