Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2018 | 23:00

LET Access: Guðrún Brá T-11 e. 2. dag í Frakklandi!

Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Berglind Björnsdóttir, GR tóku þátt á móti vikunnar á LET Access,  Bossey Ladies Championship 2018.

Mótið fer fram í Association du Golf & Country Club de Bossey, í Bossey, Frakklandi.

Guðrún Brá hefir spilað glæsilega á samtals 2 undir pari, 140 höggum (70 70) og er T-11, þ.e. deilir 11. sætinu með 2 öðrum kylfingum.

Berglind lék á 11 yfir pari, 153 höggum  (75 78) og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð, sem var miðaður við 5 yfir pari eða betra.

Sjá má stöðuna á Bossey Ladies Championship 2018 með því að SMELLA HÉR: