Guðrún Brá Björgvinsdóttir með ás!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2018 | 20:00

LET Access: Guðrún Brá m/ás í Finnlandi!!!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK fór holu í höggi í móti á LET Access ,Viaplay Ladies Finnish Open, sem fram fer 7.-9. júní 2018.

LET Access er næsta sterkasta atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu og með því að fá ás á móti á þeirri mótaröð, má segja að Guðrún Brá hafi gert þetta með stæl, en ásinn er 1. ás Guðrúnar Brá!!!

Mótið fer fram á velli Messilä Golf í Finnlandi og kom ás Guðrúnar Brá á par-3 15 holu vallarins, sem er 202 yardar eða 185 metrar.

Þetta er 1. ás Guðrúnar Brá.

Golf 1 óskar Guðrúnu Brá innilega til hamingju með inngönguna í Einherjaklúbbinn!!!