Ragnheiður Jónsdóttir | september. 16. 2018 | 18:00

LET Access: Guðrún Brá komst ekki g. niðurskurð á WPGA Int. Challenge

Íslandsmeistarinn í höggleik 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK, tók þátt í móti vikunnar á LET Access mótaröðinni.

Þetta var WPGA International Challenge 2018 mótið, sem fram fór í Stoke by Nayland Hotel Golf & Spa í Englandi, dagana 13.-15. september 2018.

Guðrún Brá komst ekki í gegnum niðurskurð, lék á samtals 8 yfir pari, 152 höggum  (74 78).

Niðurskurður var miðaður við samtals 4 yfir pari, eða betra.

Sigurvegari mótsins varð belgíska stúlkan Manon de Roey, en hún lék á 11 undir pari, líkt og Lydia Hall og varð því að koma til bráðabana milli þeirra, sem de Roey hafði betur í.  Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Manon de Roey með því að  SMELLA HÉR: 

Sjá má lokastöðuna á WPGA International Challenge 2018 mótinu með því að SMELLA HÉR: