LET Access: Gott gengi Ólafíu Þórunnar heldur áfram – var með glæsiörn og er meðal efstu e. 2. dag í Strasbourg
Íslandsmeistarinn okkar í höggleik Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR tekur þátt í fyrsta atvinnumannsmóti sínu, þ.e. á Open Generali de Strasbourg í Strasbourg, Frakklandi, en mótið er hluti af LET Access mótaröðinni.
Mótið er þriggja hringja og stendur dagana 25.-27. september. Skorið verður að venju niður eftir 2 hringi og þær sem ná gegnum niðurskurð fá að spila lokahringinn… Ólafía Þórunn er svo sannarlega þar á meðal og er hún búin að gera gott betur en það!
Ólafía Þórunn er samtals búin að spila á samtals 3 undir pari 141 höggum (70 71) og er sem stendur í 6. sæti í mótinu, en sætistala hennar getur enn breyst vegna þess að nokkrar eiga eftir að ljúka hringjum sínum.
Í dag fékk Ólafía Þórunn glæsiörn á 13. holu Strasbourgarvallarins, en auk þess 2 fugla og 3 skolla. Stórglæsilegur árangur þetta!!!
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Open Generali de Strasbourg mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
