Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2014 | 10:30

LET Access: Fylgist með Valdísi Þóru lokahringinn!!!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í Mineks & Regnum Ladies Classic, sem fer fram National Golf Club í Belek, Antalyu, Tyrklandi.

Mótið stendur dagana 5.-7. september 2014 og lýkur því í dag. Þátttakendur eru 81.

Valdís Þóra lék fyrstu 2 hringina í mótinu á 5 yfir pari, 151 höggi (78 73) og var í 11. sæti fyrir lokahringinn, sem þegar er hafinn.

Nú þegar þetta er ritað er Valdís Þóra búin að spila 12 holur og er búin að spila það sem af er 3. hrings á 6 yfir pari, sem hljóta að vera mikil vonbrigði.

Valdís Þóra byrjaði sjokkerandi illa, en hún var strax komin 4 yfir eftir spil á fyrstu holunni, sem er par-5 .  9 högg!!!

Síðan fylgdi skolli á par-4 3. holunni, sem Valdísi tókst að ná aftur með fugli á næstu holu, par-5 4. holunni. Síðan fékk Valdís Þóra tvöfaldan skolla á par-4 8. holunni, sem hún var með fugl á í gær.  Eftir það hefir leikurinn Guði sé lof róast og Valdís búin að spila á pari næstu 4 holur. Vonandi gengur Valdísi allt í haginn seinustu 6 holurnar, en Valdís á m.a. eftir að spila 13. og 15. holu sem hún fékk fugla á í gær og vonandi að vöðvaminnið hjá henni kikki inn!!!

Til þess að fylgjast með árangri Valdísi Þóru í Tyrklandi  SMELLIÐ HÉR: