Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 18:30

LET Access: Erfið byrjun hjá Ólafíu og Valdísi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL eru við keppni á móti vikunnar á LET Access í Svíþjóð.

Mótið heitir Borås Ladies Open og fer fram í Borås golfklúbbnum í Svíþjóð. Það stendur dagana 3.-5. júlí 2015.

Þátttakendur eru 113.

Ólafía Þórunn lék á 5 yfir pari, 77 höggum í dag og er T-46 eftir 1. dag og möguleiki á að hún komist í gegnum niðurskurð.

Valdís Þóra lék á 9 yfir pari, 81 höggi og er T-82.

Fylgjast má með stöðunni hjá þeim Ólafíu og Valdísi með því að SMELLA HÉR: