Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2013 | 11:00

LET: Inbee Park leiðir á Mission Hills World Ladies Championship eftir 2. dag

Það er Inbee Park frá Suður-Kóreu sem tekið hefir forystu á Mission Hills World Ladies Championship á 2. keppnisdegi.

Park er samtals búin að spila á 11 undir pari, 133 höggum (68 65). Í dag átti hún glæsihring upp á 65 högg þar sem hún fékk 7 fugla og 11 pör og skilaði því „hreinu skorkorti.“

Í 2. sæti er nr. 1 í Evrópu 2012, spænski kylfingurinn Carlota Ciganda. Hún er aðeins 1 höggi á eftir Park.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Mission Hills World Ladies Championship SMELLIÐ HÉR: