Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2013 | 12:00

LET: 3 í forystu eftir 1. dag í Kína

Það eru 3 kylfingar, Holly Clyburn, Ashleigh Simon og Veronica Zorzi , sem leiða eftir 1. dag á Suzhou Taihu Ladies Open, sem hófst í dag á golfvelli Suzhou Taihu International golfklúbbsins í Suzhou, Kína.

Allar léku þær þrjár á 7 undir pari, 65 höggum.

Í 4. sætinu er síðan ástralski kylfingurinn Nikki Garrett á 6 undir pari, 66 höggum og þrjár deila síðan 5. sætinu á 5 undir pari, 67 höggum, en þeirra á meðal er spænski kylfingurinn Carlota Ciganda, sem á titil að verja í mótinu.

Enski Solheim Cup kylfingurinn ungi Charley Hull deilir sem stendur 22. sætinu með 14 öðrum kylfingum, en hún lék fyrsta hring á 2 undir pari, 70 höggum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Suzhou Taihu Ladies Open  SMELLIÐ HÉR: