Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2016 | 08:15

LEK: Ísland T-12 e. 2. dag á EM eldri kylfinga

Íslenska landsliðið sem keppir á Evrópumóti eldri kylfinga í Waterloo í Belgíu bætti stöðu sína á öðrum keppnisdeginum. Íslenska liðið bætti sig um þrjá punkta og færðist upp í tólfta sæti (sem það situr í ásamt Þjóðverjum þ.e. er T-12). Vonast menn til að ná enn meiri bætingu á dag. Veður var þokkalegt – væta af og til og sólskin á milli.

Eins og fyrri daginn voru Jóhann Peter Andersen og Guðlaugur R. Jóhannsson á besta skorinu eða 37 punktum, Helgi Hólm og Gunnlaugur Ragnarsson voru með 35 punkta, Pétur Elíasson og Kristinn Jóhansson voru á 32 punktum.

Sem fyrr eru það Norðmenn sem spila best og leiða keppnina.

Keppt er á Chateau de Tournette. Mótið fer fram í tvennu lagi – með og án forgjafar og keppir lið LEK með forgjöf.

Alls eru keppendur yfir tvö hundruð frá átján þjóðum.

Eftirfarandi menn skipa íslensku sveitina: Jóhann Peter Andersen, Guðlaugur R Jóhannsson, Gunnlaugur Ragnarsson, Helgi Hólm, Kristinn Jóhannsson og Pétur Elíasson.

Fyrirkomulagið er þannig að fyrstu tvo dagana leika tveir saman í punktakeppni og telst betra skor kependa á hverri holu fyrir sig. Síðasta daginn (þ.e. í dag, 15. júlí 2016)  er síðan leiknn einmenningur. Ávallt gildir skor bestu fjögurra í hvern dag keppninni.

Bikarkeppnin (Cup):

1

Noregur

168

2

Portugal

161

3

Ítalía

150

4

Spánn

149

5

Slóvakía

148

6

Sviss

147

7

Belgía

146

8

Finnland

145

9

Austurríki

144

10

Frakkland

143

11

Bretland

143

12

Þýskaland

141

13

Ísland

141

14

Króatía

139

15

Tékkland

134

16

Lúxembourg

132

17

Ungverjaland

130

18

Holland

129

Staðan er eftirfarandi eftir 2. daga keppni í Championship-hluta mótsins (þar sem Íslendingarnir taka ekki þátt): 

Danmörk 295

England 295

Spánn 296

Sviss 298

Svíþjóð 300

Frakkland 301

Finnland 307

Þýskaland 307

Noregur 309

Portugal 311

Belgía 314

Austurríki 326

Tékkland 328