Ragnheiður Jónsdóttir | september. 20. 2017 | 18:00

LEK: 8 manna hópur frá Íslandi keppir á vinamóti í Noregi

Átta manna hópur eldri kylfinga frá Íslandi er staddur í Noregi þessa dagana þar sem þeir keppa við heimamenn í vináttuleikjum.

Um er að ræða landsliðskylfinga sem skipuðu lið LEK fyrir um þremur árum.

Góður vinskapur myndaðist hjá íslenska og norska liðinu í þeirri keppni og hafa þeir haldið tengslum með heimsóknum frá þeim tíma.

Norska liðið kom m.a. til Íslands í fyrra og léku á þremur völlum gegn íslenska liðinu.

Vinamótið fer nú fram í Noregi og hafði norska liðið betur í fyrstu tveimur leikjunum. Íslenski hópurinn er þannig skipaður: Sæmundur Pálsson, Henrý Þór Gränz, Óskar Pálsson, Jón Haukur Guðlaugsson, Þorsteinn Geirharðsson, Snorri Hjaltason, Magnús Þórarinsson og Skarphéðinn Skarphéðinsson.

Texti: GSÍ