Landsliðskylfingarnir í fótboltagolfi
Karla – og piltalandslið Íslands hafa æft af krafti á undanförnum dögum og lagt lokahöndina á undirbúninginn fyrir Evrópumótin sem hefjast 7. og 8. júlí. Liðin æfðu í Básum og Grafarkotsvelli í vikunni og fóru einnig í fótboltagolf til þess að brjóta upp æfingamynstrið. Á nýjum fótboltagolfvelli í Skemmtigarðinum í Grafarvogi sýndu landsliðskylfingarnir gamla fótboltatakta en þeir voru margir hverjir í fremstu röð í knattspyrnu áður en þeir völdu golfíþróttina.
Karlalandsliðið keppir í 2. deild á Postolowo golfvellinum í Póllandi. Völlurinn er næst lengsti völlur Evrópu, alls 7101 metri. Mótið fer fram 8.-11. júlí. Í mótinu keppa tíu þjóðir, en þrjár efstu komast í 1. deildar keppnina á næsta ári. Leiknar eru 36 holur í höggleik og munu fjórar efstu þjóðirnar leika holukeppni, þjóð gegn þjóð, tvær umferðir á hverjum degi, fjórir fjórmenningar fyrir hádegi og fimm tvímenningar eftir hádegi.
Karlalandsliðið er þannig skipað:
Andri Þór Björnsson (GR), Axel Bóasson (GK), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Kristján Þór Einarsson (GM), Rúnar Arnórsson (GK). Þjálfari: Birgir Leifur Hafþórsson. Liðsstjóri/sjúkraþjálfari: Gauti Grétarsson.
Piltalandsliðið keppir á Pickala Park Course golfvellinum í Finnlandi. Völlurinn er skógarvöllur, 6651 metri að lengd. Mótið fer fram 7.-11. júlí. Í mótinu fá 16 þjóðir þátttökurétt, en eftir 36 holu höggleik leika átta efstu í A riðli og 8 þjóðir í B riðli. Þar eftir verður leikin holukeppni, þjóð gegn þjóð. Í A riðli eru leiknar tvær umferðir á dag, fjórir fjórmenningar fyrir hádegi og fimm tvímenningar eftir hádegi. Í B riðli er leikin ein umferð daglega, einn fjórmenningur og fjórir tvímenningar. Þrettán efstu þjóðirnar tryggja sér þátttökurétt í mótinu á næsta ári, en þrjár neðstu þurfa að fara í 2. deild og leika í undankeppni til að komast aftur upp.
U18 piltalandsliðið er þannig skipað:
Fannar Ingi Steingrímsson (GHG), Gísli Sveinbergsson (GK), Björn Óskar Guðjónsson (GM), Henning Darri Þórðarson (GK), Tumi Hrafn Kúld (GA), Hlynur Bergsson (GKG). Þjálfari: Úlfar Jónsson. Liðsstjóri: Ragnar Ólafsson.
Texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
