Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2013 | 01:00

Kristján Þór tileinkaði sigur sinn Skúla Skúlasyni fv. formanni Kjalar

Kristján Þór Einarsson, klúbbmeistari GKJ, sem sigraði svo glæsilega á Hólmsvelli í Leiru í gær, 1. september 2013, á síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar, Nettó-mótinu, tileinkaði sigur sinn Skúla Skúlasyni fv. formanni Kjalar, sem lést langt um aldur fram í síðustu viku.

Þannig segir Kristján Þór á facebook síðu sinni:

„Langþráður sigur á Eimskipsmótaröðinni kom í dag í þessu líka frábæra sumarveðri sem Ísland hefur verið að bjóða okkur kylfingum í allt sumar… Þessi sigur er tileinkaður fyrrum formanni Golfklúbbsins Kjalar honum Skúla Skúlasyni sem að lést fyrir skömmu eftir langa og harða baráttu við krabbamein. Skúli er einmitt maðurinn á bakvið minn fyrsta sigur á mótaröð í íslensku golfi því þegar ég var 17 ára gamall (2003) kemst ég í undanúrslit og síðan úrslit í Íslandsmótinu í holukeppni, hann mætti galvaskur snemma um morguninn til að fylgjast með mér og bauðst til að bera pokann fyrir mig og að lokum endaði ég sem sigurvegari í því móti þökk sé honum… Það er afar sorglegt að svona mikið stórmenni eins og hann sé búinn að kveðja okkur og hans verður sárt saknað… Skúli, þessi sigur var fyrir þig. Hvíl í friði…“