Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2018 | 20:00

Kristin Gillman sigraði á US Women´s Amateur

Kristin Gillman sigraði í 2. sinn á US Women´s Amateur nú um helgina.

Hún sigraði Jiwon Jeon frá S-Kóreu sannfærandi 7&6 en í mótinu er spiluð holukeppni.

Gillman bættist því nú um helgina í hóp Juli Inkster, JoAnne Carner og Danielle Kang sem unnið hafa þetta mót oftar en 1 sinni.

Fyrsti sigurinn var í raun sjokk fyrir hina 16 ára Gillman, sem næstum því hefði ekki tekið þátt, en hún hafði betur gegn kanadísku ungstirni þá að nafni Brooke Henderson.

Ég hugsa að þessi (sigur) hafi verið miklu erfiðari,“ sagði Gillman „… í hvert sinn sem ég kem aftur þá hef ég alltaf talað um  – eins og í þessari viku að ég sé eini fyrrum sigurvegarinn í mótinu og þannig hefir það í för með sér meiri pressu. En ég hugsa líka að þetta geri sigurinn svolítið sætari.“

Sigurinn í mótinu veitir Gillman m.a. tækifæri að taka þátt í Evian risamótinu, en hún er óviss hvort af því verður því hún muni þá vegna undirbúningsins fyrir risamótið auk undirbúnings fyrir Q-school LPGA missa svo mikið af í skólanum en hún er að hefja nám í Alabama háskóla.

Þess ber að geta að Gillman er með 4 í meðaleinkunn, sem samsvarar 10 hér á landi. Pottþétt í alla staði og Gillman svo sannarlega nafn sem vert er að leggja á minnið í kvennagolfinu!!!