Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2012 | 07:00

Kona kenndi GPS tækinu um að hún keyrði bíl sínum í sandglompu

Kona nokkur keyrði inn á golfvöll og ofan í sandglompu. Þegar lögreglan mætti á svæðið sagði hún að GPS tækið sitt hefði gefið upp ranga staðsetningu og því hefði farið sem fór. Lögreglan sagði að konan hefði verið drukkin undir stýri.

Patricia Maione var haldið gegn $ 10.000,- tryggingu eftir að hún sagðist saklaus af því m.a. að keyra án ökuréttinda og í 4. sinn ölvuð undir stýri.

Yfirvöld segja konuna, 47 ára, hafa fest sig í sandglompu  Whitinsville Golf Club í Northbridge, Massachusetts sl. mánudag. (Komast má á heimasíðu golfklúbbsins með því að SMELLA HÉR: ) Hún sagði að skv. GPS tækinu hefði hún hlotið leiðbeiningu um að taka vinstri beygju, en með því að gera svo hefði hún endað á golfvellinum.  Annað kostulegt sem konan sagði við handtöku var að hún kynni ekki einu sinni við golf!

Í upprunalegu fréttinni í Telegram & Gazette segir m.a. að lögregla hafi fundið ílát með áfengi í bíl hennar.

Það voru kylfingar að leik á golfvellinum en enginn slasaðist við glannaakstur frú Maione.

Heimild: Stuff.co.nz