Gísli Sveinbergsson, GK. Photo: Die Isländische Golf Union Keilismenn (Gísli og Guðrún Brá) efst íslenskra kylfinga á heimslista áhugamanna
Gísli Sveinbergsson heldur áfram að stökkva upp heimslistann hjá áhugakylfingum. Keilismaðurinn er nú í 107. sæti og bætti þar með „Íslandsmet“ sem Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum setti árið 2011 þegar hann fór upp í 110. sæti heimslista áhugakylfinga.
Gísli, sem er aðeins 17 ára gamall og A-landsliðsmaður, getur bætt stöðu sína enn frekar á næstunni. Hann keppir á tveimur sterkum áhugamannamótum í desember, en þau fara fram í Miami í Bandaríkjunum. Mótin sem um ræðir eru Junior Orange Bowl og South Beach Invitational Amateur. Ef vel tekst til mun Gísli komast í hóp 100 efstu á heimslista áhugakylfinga en hann hefur farið upp um 2400 sæti á heimslista áhugakylfinga á þessu ári.
Alls eru 29 íslenskir karl kylfingar á heimslistanum en bæði Íslandsbankamótaröð unglinga og Eimskipsmótaröðin hafa fengið aukið vægi á heimslistanum eftir að mótin urðu 54 holu mót.
Í kvennaflokki er Guðrún Brá Björgvinsdóttir efst af Íslendingunum en hún hefur farið upp um tæplega 700 sæti á einu ári. Guðrún Brá er í sæti nr. 331 á heimslistanum en var í sæti nr. 995.
Efstu íslensku kylfingarnir í karlaflokki á heimslistanum:
107. Gísli Sveinbergsson, GK
233. Haraldur Franklín Magnús, GR
262. Bjarki Pétursson, GB
583. Kristján Einarsson, GKj.
1160. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR
1198. Aron Júíusson, GKG
1295. Ragnar Már Garðarsson, GKG
1388. Andri Þór Björnsson, GR
1417. Axel Bóasson, GK
1537. Rúnar Arnórsson, GK
2009. Stefán Þór Bogason, GR
2109. Fannar Steingrímsson, GHG
2475. Hrafn Guðlaugsson, GSE
Efstu íslensku kylfingarnir í kvennaflokki á heimslistanum eru:
331. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
510. Sunna Víðisdóttir, GR
1104. Berglind Björnsdóttir, GR
1282. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
1300. Signý Arnórsdóttir, GK
1721. Anna Sólveig Snorradóttir, GK
1908. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK
1964. Ólöf María Einarsdóttir, GHD
2317. Tinna Jóhannsdóttir, GK
Heimild: golf.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
