Keiliskonur á Írlandi
Hópur þrettán Keiliskvenna á aldrinum 68-80 (Sveiflurnar) fóru nú um daginn til Írlands í golfferð.
Upphaflega var áætlað að 14 færu í þessum hóp, en ein veiktist og gat því miður ekki farið.
Hópurinn er nú kominn heim eftir yndislega 5 daga í Carton House, þar sem leikið var á 2 völlum, O‘Meara og Montgomerie.
Veðrið lék ekki við hópinn fyrsta daginn á O‘Meara, en það var þokkalegt, síðan á Montgomerie í rosalegu roki en þurru veðri. Á þeim velli eru amk. 100 „sandkassar“, þannig að völlurinn er ekki sá auðveldasti.
Þriðja daginn var spilað á O‘Meara, rástími kl. 08:00. Keiliskonur spiluðu í hífandi roki og grenjandi rigningu, enginn úti nema þær og það varð óspilandi og þær urðu að hætta eftir 4 holur.
Siðasta daginn var síðan Montgomerie spilaður, þar tókst að ljúka hringinn í grenjandi rigningu, en allt gekk ljómandi vel, enda eru „Sveiflurnar“ „hörkukellur“.
Á Carton House fór Heimsmestaramót áhugakylfinga fram nú fyrr á árinu.
Það var Magnús Birgisson, golfkennari sem skipulagði ferðina.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
