Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2015 | 11:00

Keegan Bradley grínast með hvað Luke Donald er stuttur af teig

Keegan Bradley er nr. 10 á listanum yfir högglengstu kylfinga á PGA Tour.

Luke Donald, hmm… já hvar er hann eiginlega á listanum yfir högglengstu kylfinga mótaraðarinnar?

Maður verður að fara niður listann og neðar og enn neðar og …..  já einmitt hann er í 178. sætinu.

Að meðaltali drævar Donald 277 yarda (253 metrar) en Bradley 306,1 yarda (289.9 metra).

Bradley af ókunnum ástæðum fór að grínast með það á Twitter hversu höggstuttur Luke Donald væri.

Og sá svaraði fyrir sig með því að skrifa hæðnislega að Bradley drykki bara eplamjöð. ???? What?

Hvað er eiginlega að því að drekkja Apple Ale eins og drykkurinn heitir á ensku? Og hvað með það þó Donald sé höggstuttur?

Lengdin, eins og allir vita, skiptir engu máli.

Sjá má umfjöllun Golf Digest og Twitter skeyti sem flugu milli Bradley og Donald með því að SMELLA HÉR: