Kaymer bjartsýnn
Martin Kaymer er ekkert alltof hrifinn af gengi sínu á árinu og viðurkennir það fúslega. Hann verður manna fegnastur þegar þessu ári lýkur, rétt eins og félagi hans Rory McIlroy.
Kaymer, sem er fyrrum nr. 1 á heimslistanum er t.a.m. fallinn niður í 38. sætið á heimslistanum og ef fram heldur sem horfir kemst hann ekkert inn á risamótin á næsta ári (að undanskildu PGA Championship).
Hann hefir hins vegar tilefni til bjartsýni nú.
Hann sigraði nefnilega í Sheshan International Golf Club fyrir tveimur árum, þar sem WGC-HSBC Champions, fer fram 31. október- 3. nóvember n.k. og kann einkar vel við sig þar.
Hann hefir hægt og rólega verið að jafna sig á sambandsslitunum við fyrrum kærestu sína, Alison Micheletti, sem gifti sig nýja kærestanum nú um daginn. Sjá umfjöllun Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:
Kaymer er bjartsýnn á gott gengi í Kína en hann hefir algerlega einbeitt sér að golfinu og árangurinn hefir ekki látið á sér standa – hann er aftur farinn að sjást meðal efstu 10 á mótum og fróðlegt að sjá hvernig 2012 Ryder Cup hetjan Kaymer stendur sig í Sheshan!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
