Karlalandsliðið varð í 13. sæti í Evrópumeistaramótinu í liðkeppni – Danir Evrópumeistarar
Karlalandslið Íslands keppti í efstu deild á Evrópumeistaramóti í liðakeppni 2021 dagana 6. – 10. júlí 2021. Keppt var á PGA Catalunya vellinum á Spáni rétt utan við borgina Barcelona. Heiðar Davíð Bragason var þjálfari liðsins í þessari ferð og Baldur Gunnbjörnsson sjúkraþjálfari var einnig með í för.
Upplýsingar um rástíma, skor og úrslit má nálgast hér:
Keppni hófst 6. júlí og lokakeppnisdagurinn var 10. júlí. Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur – 36 holur alls. Fimm bestu skorin telja hjá hverju liði. Átta efstu liðin léku til úrslita um Evrópumeistaratitilinn í holukeppni sem tók við af höggleiknum. Liðin í sætum nr. 9 -13 léku um fall í 2. deild.
Frakkar og Danir léku til úrslita um Evrópumeistaratitilinn – þar sem að Danir höfðu betur og fögnuðu sigri í fyrsta sinn í þessari keppni. Belgar náðu þriðja sætinu eftir sigur gegn Spánverjum.
Ísland mætti Írum í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Þar höfðu Írar betur 4-1. Aron Snær Júlíusson og Hlynur Bergsson fengu báðir 1/2 stig úr sínum viðureignum.
Ísland mætti liði Sviss í næstu umferð og tapaðist sá leikur 3-2. Sverrir Haraldsson og Hlynur Bergsson unnu fjórmenningsleikinn 2/1 – Hákon Örn Magnússon landaði einnig sigri í sinni viðureign.
Eftirtaldir leikmenn skipa karlalandslið Íslands:
- Aron Snær Júlíusson, GKG
- Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
- Hákon Örn Magnússon, GR
- Hlynur Bergsson, GKG
- Kristófer Karl Karlsson, GM
- Sverrir Haraldsson, GM
Þjálfari Heiðar Davíð Bragason
Sjúkraþjálfari Baldur Gunnbjörnsson
Alls eru 13 þjóðir sem keppa á EM karla: Austurríki, Belgía, Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Írland, Ítalía, Holland, Portúgal, Spánn, Svíþjóð, Sviss.
2. keppnisdagur:
Ísland endaði í 12. sæti og leikur því um sæti 9.-13. en Portúgal komst beint áfram í undanúrslit í þessum riðli þar sem að liðin í sætum 10-13 leika í 1. umferðinni.
1. keppnisdagur:
Íslenska liðið er í 10. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á +4 samtals eða 359 höggum. Frakkland er á 12 höggum undir pari samtals, Holland er í öðru sæti á -6 samtals. Fimm bestu skorin telja í höggleikskeppninni. Aron Snær Júlíusson er á þriðja besta skorinu í einstaklingskeppninni en besta skor mótsins er -5.
Aron Snær Júlíusson 68 högg (-3)
Dagbjartur Sigurbrandsson 70 högg (-1)
Hlynur Bergsson 71 högg (par)
Kristófer Karl Karlsson 75 högg (+4)
Sverrir Haraldsson 75 högg (+4)
Hákon Örn Magnússon 79 högg (+8)
Staðan:
1. Frakkland 343 högg (-12)
2. Holland 349 högg (-6)
3.-4. Þýskaland 350 högg (-5)
3.-4. Svíþjóð 350 högg (-5)
5.-6. Belgía 352 högg (-3)
5.-6. Danmörk 352 högg (-3)
7.-8. Spánn 354 högg (-1)
7.-8. Sviss 354 högg (-1)
9. Portúgal 357 högg (+2)
10. Ísland 359 högg (+4)
11. Ítalía 360 högg (+5)
12. Austurríki 360 (+5)
13. Írland 367 högg (+12)
Nánari upplýsingar um mótið má nálgast hér:
Í aðalmyndaglugga: Frá vinstri: Kristófer Karl Karlsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Hlynur Bergsson, Sverrir Haraldsson, Hákon Örn Magnússon, Aron Snær Júlíusson. Mynd/HDB
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
