Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2012 | 09:00

Kæresta Rory með nýja nærfatalínu

Hvað með það þó þetta sé á mörkunum með að vera frétt tengd golfi?

Caroline Wozniacki, kæresta nr. 2 í golfheiminum Rory McIlroy tilkynnti á vefsíðu sinni í fyrradag SMELLIÐ HÉR:  að hún hefði hrundið úr vör sinni eigin nærfatalínu, sem mun fara í sölu um allan heim næstkomandi september.

This is me nærfötin

Nýja nærfatalínan heitir  This is Me.“, eða upp á íslensku „Þetta er ég“ og er unnin í samvinnu við leiðandi nærfataframleiðanda á Norðurlöndunum  JBS Underwear.

Meðal þess sem gefur að finna í nýju línunni eru nærhöld, g-strengir, brjósthöld og nærbolir bæði í bómull og míkróefni. Á dagskrá hjá Wozniacki og JBS er að koma fram með nýjungar í línunni tvisvar á ári framvegis.

Úr This is me nærfatalínu Caroline Wozniacki

Wozniacki hefir lýst línunni sinni sem: „Kvenlegri lífstíls/tómstunda línu í nærfatnaði fyrir stúlkuna sem vill tolla í tísku, fá nærföt sem falla fullkomlega að líkamanum ásamt gæðum sem erfitt er að slá við.“

Rory McIlroy hefir ekki tjáð sig um nýjasta verkefni kærestunnar, en Caroline er fyrir utan nærfötin mjög upptekin af því að koma sjálf fram í auglýsingum nú nýlega m.a. fyrir Compeed plástra. Til að sjá eina nýjustu auglýsinguna með Caroline Wozniacki SMELLIÐ HÉR: 

En varðandi nærfötin þá var haft eftir ónefndum aðila:„Nú, það er þá þess vegna sem Rory hefir átt svo erfitt með að einbeita sér að golfinu undanfarið!“