Johnson bræður í sviðsljósinu í Shanghaí!
Dustin Johnson (oft kallaður DJ) lauk við 2013 keppnistímabilið á sama hátt og hann hóf það, með því að vinna sér inn óheyrilega peningafjárhæð eftir að hafa haft betur gegn samkeppninni, sem flestallir hafa sigrað á stórum atvinnumótum.
Annað markvert sem gerðist í gær í Shanghaí á HSBC mótinu var að fyrrum nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy tryggði sér sæti á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Dubaí. En á það er bara minnst svona í framhjáhlaupi.
Sigur DJ var sætur því litli bróðir hans, Austin var á pokanum hjá honum í stað kaddýsins Bobby Brown og kærestan, Paulina Gretzky fylgdist með hverju fótspori síns heittelskaða allar 72 holurnar í Sheshan golfklúbbnum. Paulina, er fyrir þá sem ekki vita það, dóttir hokkígoðsagnarinnar kanadísku Wayne Gretzky.
Á 18. holu á lokahringnum fögnuðu þau þrjú gífurlega þegar Dustin tók við sigurtékkanum upp á $ 1.4 (180 milljónir íslenskra króna) eftir að hafa unnið næsta mann sem á eftir honum kom, Ryder Cup stjörnuna, Ian Poulter, sem átti titil að verja, með 3 höggum.
„Bróðir minn kom til þess að kaddýast fyrir mig í Ástralíu og síðan kom hann til Thaílands með mér,“ sagði DJ.
Þau þrjú, Austin, Dustin og Paulina vörðu fríinu saman í Thaílandi eftir að DJ landaði 12. sætinu í móti Evrópumótaraðarinnar Perth International fyrir 2 vikum.
„Ég hringdi bara í Bobby og sagði honum að það hefði ekkert upp á sig fyrir hann að fljúga alla leið til Shanghaí fyrir 1 viku, sérstaklega þar sem hann langaði ekkert vegna þess að hann er nýbakaður faðir,“ sagði DJ.
Johnsonarnir og ungfrú Gretzy skemmtu sér konunglega í Thaílandi og settu fullt af myndum af sér á félagsmiðlana (m.a. þær hér að ofan og enn ofar innan um Tiger-a og fíla – greinilega dýraelskt par).
Síðasta mót sem DJ vann á undan HSBC var Hyundai Tournament of Champions í Hawaii, fyrsta mótið sem hann tók þátt í 2013.
Fríið í Thaílandi með kærestunni og bróður hans hefir greinilega haft góð áhrif á hann þar sem hann sigraði í gær í síðasta móti sem hann tekur þátt í, í ár.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024



